mánudagur, ágúst 29

Gold teeth and the curse for this town
Þá er skólinn byrjaður aftur, 3 árið mitt. JESÚS!!:)
Ég var að koma frá Danmörku, viku skemmti og verslunarferð...mig langar þvílíkt mikið aftur á Vega, skemmtistaður fyrir ykkur sem vitið minna en ég;) hehe...
en ég er langt frá því að vera búin með útlanda skammtinn minn í ár. Mér var boðið að koma í heimsókn til Hallster, eins og hann er kallaður, hann fjarfesti í 2 miðum á Bloc party tónleik sem verða í Edinborg 2.oct og býður mér að koma með sér!!! úúú og ég ákvað að skella mér á staðinn og krassa pleisið, klárlega!!!
Svo held ég ennþá í vonina að mér verði boðið til Kanarí eða eitthvað svoleiðis í jólafríinu. Þá verður árið fullkomnað, Svíþjóð, Köben, Edinborg og ?Kanarí???:)
Sjiii...þetta getur verið jólagjöf frá þér!! Takk fyrir:)
en nóg ákvað að láta heyra í mér, því ég er náttúrulega svoo merkilega merkileg;) KREIC PEOPLE!!! Adios...
Bergur:/
& já ég ER að fara á Franz Ferdinand á FÖSTUDAGINN!!!!

mánudagur, júlí 11

stalk the ground
Ég er komin með bílpróf og má keyra um götur bæjarins. Fænallý, nú á ég ekki í hættu á að vera lamin af hinum og þessum...ég var í stóhættu á tímabili:)

Á föstudaginn var skondið party hjá gamla bekknum mínum, það var mjög fyndið að hitta alla aftur! Allir vojalega kammó og vel í því:)

De-loused in the comatorium með The Marsvolta var í góðri spilun um helgina.

fimmtudagur, júní 30

you'll go backwards but then, you'll go forwards again
Allt er komið á skrið! Vinnan er ágæt, rosalegt chill! Fæ borgað fyrir að sitja og vera í tölvunni, hlusta á Ipodinn minn eða lesa:) sem er allveg ágætt. Var reyndar dáldið leiðinlegt í byrjun en núna er ég allveg þannig farin að fíla þetta. Það eina sem vantar er bekkur eða eitthvað sem ég gæti lagst á þá væri þetta fullkomið, það er nefnilega ekkert voðalega þægilegt að sofna sitjandi í stól. Ég er allveg ónýt í hliðinni og bakinu eftir það!!!:S Svo styttist óðum í skemmtiferðina til Danmerkur eða á ég að segja verslunarferðina þar sem við munum missa okkur, það eitt er fyrir víst! Við einhvern veginn náum alltaf að láta allar kaupa allt. Mjög skrítið!
Ef litla diskabúllan er farin á hausinn þá ætla ég að meiða Þóru! OK? OK!:)

Tónlistin núna er Wilco-A Ghost is Born & Coldplay-X&Y
Æðislegt!!!
Bergur Beaty: sem upprunalega átti að vera Beauty en þar sem Þóra kunni ekki að skrifa það þá varð það Beaty;)

föstudagur, maí 20

Are you hoping for a miracle?

Þetta langþráða sumarfrí er komið og ég elska það! Á mánudaginn byrjar svo vinnan mín, í Seðlabankanum og á þriðjudaginn fer ég svo vonandi í síðast sinn niður í Kvennó á þessu skólaári:) Mér finnst það skrítið, við erum búin með helminginn af menntaskóla...þetta líður hratt! Sumarið er góður tími og liggur hann nú fyrir fótum okkar, heilir 3 mánuðir af skemmtun, peningum, sól og hita...ahh eins og ég segi alltaf sumarið er tíminn!!!:D

bergur d:)

fimmtudagur, maí 12

hvar er Guðmundur, oóó hvar er Guðmundur vinur minn kær...
Já, ég nenni ekki að læra svo ég nota tækifærið og skelli inn einu stykki færslu.
Prófin eru byrjuð og hata ég það. Þessi tími er svo leiðinlegur. Ekkert að gerast, allir sitjandi á rassinum að lesa, reikna eða horfa útí loftið þykjast vera að læra. Ég bara nenni þessu ekki lengur, 4 búin og 3 eftir...GUÐMUNDUR!!! rárr...

Spurning hvort einhver kíki á þessa síðu ennþá og lesi hana??
Hver þá??:)

laugardagur, mars 12

Ég er glöð núna. Mjög glöð meira að segja!
Franz Ferdinand kemur til landsins og heldur tónleika í maí. Ég ætla að fara, það er allveg pottio:)
Happy...
Lífið er fínt núna, skólinn gengur sinn vana gang og mér líður vel. Páskafríið er svo skammt undan, eftir 7 daga. Eini galli við það er að Begga fer aftur út til Spánar. Alltaf verið að skilja mig eftir hérna á klakanum!!
Jahérnahér,,

laugardagur, febrúar 12

you've got to do something
Heim komin frá Svíþjóða, því miður. Ég hefði ekkert á móti að vera aðeins lengur þarna úti. Það var frekar gaman. Ég lenti í HIMNARÍKI
Plötubúð sem sedi marga diska á mjög lágu verði og ég auðvitað fékk kast og hefði viljað kaupa nokkuð marga diska en ég sætti mig við Rearviewmirror með Pearl jam, XO og From a basement on the hill með Elliott Smith, Abattoir Blues / The Lyre Of Orpheus með Nick Cave & the bad seeds, You Are The Quarry, sérstaka útgáfu með Morrisey og náttúrulega slatta af fötum og nýjan síma...það tilheyrir!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?